Psalms 81

1Til söngstjórans. Á gittít. Asafs-sálmur. 2Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs. 3Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur. 4Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum. 5Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, boðorð Jakobs Guðs. 6Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi: 7,,Ég hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna. 8Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. [Sela] 9Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig, ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig! 10Enginn annar guð má vera meðal þín, og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja. 11Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, opna munn þinn, að ég megi seðja þig. 12En lýður minn heyrði eigi raust mína, og Ísrael var mér eigi auðsveipur. 13Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta. 14Ó, að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum, 15þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra. 16Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu. [ (Psalms 81:17) Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.`` ]
Copyright information for Icelandic